Í Gullhreppum | Bjarni Harðarson

Í Gullhreppum | Bjarni Harðarson

Í Gullhreppum  segir frá þjóðsagnapersónunni séra Þórði í Reykjadal og hinu mikla veldi Skálholtsstaðar á 18. öld. Bjarni Harðarson hefur sögupersónuna samkynhneigða sem vakti athygli okkar enda fara engar sögur af lífi samkynhneigðra Íslendinga á 18. öld.

Sagan hefst í Kaupmannahöfn þar sem prestsefnið kemst í kærleika við okurlánara og verður síðar valdur að dauða hans. Þegar heim er komið opnar Reykjadalsprestur hús sín fyrir farandi lýð flækinga og nýtur góðs af á engjaslætti. Hann er sjálfur frábitinn allri vinnu en skoðar veröldina með kátlegu kæruleysi þess sem lætur hverjum degi nægja sína þjáningu.

Inni fyrir berst Þórður við trúarlegar efasemdir og forboðnar kenndir sínar til karlmanna. Í kararlegu sinni í Skálholti dreymir hann um að sjá Skálholtsstað í logum en hefur hvorki vilja né nennu til að kveikja þá elda.

Heimur samkynhneigðra, saumakerlingar drottningar, dreissugir skólapiltar, iðrandi syndarar og göldróttur staðarsmiður spila saman í lifandi og skemmtilegri frásögn. Íslandssagan og þjóð hennar birtist okkur með kröm sinni og skemmtan.

Í Gullhreppum  er sjálfstætt framhald bókarinnar  Í skugga drottins  sem hlaut afburða viðtökur lesenda.

Bjarni Harðarson ræddi bókina við Egil Helgason í Kiljunni 21. nóv. 2018; Kiljan - Í Gullhreppum.

 

Kvikmyndir og sjónvarp

Fleiri greinar

Dramatísk þáttaröð frá HBO um fjölbreyttan hóp...

Tónlistarmyndbönd

Fleiri greinar

Drag

Fleiri greinar