Ég elska þig til baka (Texta Video) - Páll Óskar

Ég elska þig til baka (Texta Video) - Páll Óskar Ég elska þig til baka (Texta Video) - Páll Óskar
Watch the video

Ég elska þig til baka (Texta Video) - Páll Óskar

Lag: Bjarki Hallbergsson
Texti: Páll Óskar

Ég sem hélt ég myndi aldrei elska neinn
Orðinn alveg sáttur við að vera bara einn
Svo ég hleypti engum inn
Enginn mátti vera minn

Ástin var svo hrikalega fjarri mér
Næsta sem ég veit er ég í fanginu á þér
og þú faðmar mig að þér
heyri andardráttinn

Loksins fann ég svarið eftir langa bið
Þú ert sá sem fær mig til að langa að vera til
Ég elska þig til baka

Kenndu mér að faðma á ný og finna til
Núna loksins veit ég hvað ég þarf og hvað ég vil
Ég elska þig til baka

Ég sem hélt að enginn myndi elska mig.
Alheimurinn heyrði til mín, valdi’ og sendi þig.
Og ég veit að þú ert hann
þessi eini sem ég ann

Jafnvel þótt með tímanum við gætum breyst
finn ég samt að hjartað í mér getur aftur treyst
hvernig ástin eykst og eykst
gegnum skin og skúrir.

Loksins fann ég svarið eftir langa bið
Þú ert sá sem fær mig til að langa að vera til
Ég elska þig til baka

Kenndu mér að faðma á ný og finna til
Núna loksins veit ég hvað ég þarf og hvað ég vil
Ég elska þig til baka

Loksins fann ég svarið eftir langa bið
Þú ert sá sem fær mig til að langa að vera til
Leyfðu mér að elska þig
gegnum skin og skúrir.

Loksins fann ég svarið eftir langa bið
Þú ert sá sem fær mig til að langa að vera til
Ég elska þig til baka

Kenndu mér að faðma á ný og finna til
Núna loksins veit ég hvað ég þarf og hvað ég vil
Ég elska þig til baka

---

"ÉG ELSKA ÞIG TIL BAKA" (Nýtt mix)

Lag: Bjarki Hallbergsson
Texti: Páll Óskar

Hljómborð og forritun: Bjarki Hallbergsson
Rhodes og píanó: Steingrímur Teague
Trommur: Hrafnkell Örn Guðjónsson
Hljóðgervill: Styrmir Hauksson
Bassi: Vignir Rafn Hilmarsson
Gítar: Ásgeir Ásgeirsson
Söngur: Páll Óskar
Hljóðblöndun og hljómjöfnun: Styrmir Hauksson
Útgáfudagur 29. nóv 2017

 

Kvikmyndir og sjónvarp

Fleiri greinar

Dramatísk þáttaröð frá HBO um fjölbreyttan hóp...

Tónlistarmyndbönd

Fleiri greinar

Drag

Fleiri greinar