Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra, í nærmynd

Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra, í nærmynd

Áhorfendur Stöðvar 2 fengu að kynnast Guðmundi Inga Guðbrandssyni, umhverfis- og auðlindaráðherra, betur þegar hann var í nærmynd í þættinum Ísland í dag sem var á dagskrá 8. janúar.

Guðmundur Ingi býr í miðbæ Reykjavíkur og vaknar ávallt snemma og vinnur best eldsnemma. Hann er fæddur og uppalinn á Brúarlandi á Mýrum rétt vestan við Borgarnes.

„Ég elst upp við venjulega sveitastörf og ég held að ég hafi náð aðeins inn í svona stórfjölskyldumenningu og það var alltaf gríðarlega mikill gestagangur hjá ömmu minni,“ segir Guðmundur sem segist vera mikil félagsvera.

„Ég ætlaði alltaf að verða bóndi alla mína æsku. Ég var óskaplega hændur af dýrum, sérstaklega kindunum. Ég var ofboðslega skapmikið barn og gat orðið mjög reiður en sem betur fer er það runnið af mér,“ segir Guðmundur Ingi sem er alinn upp við það að bera mikla virðingu fyrir náttúrunni. Ráðherra fór í nám í Háskóla Íslands og í meistaranám í Yale-háskólanum í Bandaríkjunum. Hann skellti sér einnig í Húsmæðraskólann í Reykjavík eftir menntaskólaárin.

„Eftir Húsmæðraskólann flutti ég aðeins til Þýskalands og dvaldi í klaustri svona til að reyna finna sjálfan mig. Ég komst að því að ég væri ekki nægilega trúaður til að verða munkur.“

Guðmundur Ingi er fyrsti samkynhneigði karlmaðurinn sem sest í ráðherrastól hér á landi. Hann var í sambandi með konu í ein sjö ár áður en hann kom út úr skápnum. „Ég átti yndisleg ár með henni og við erum mjög góðir vinir í dag. Ég sé ekki eftir þeim árum en síðan byrjar bara annar kafli í lífinu þegar maður er orðinn sáttari við sjálfan sig. Það skiptir mig miklu máli að vera góð fyrirmynd þegar maður er kominn í þessa stöðu, og ég veit að það eru enn fordómar í íslensku samfélagi.“

Skoðið nærmyndina hér á visir.is: Nærmynd af Mumma: Yale og Húsmæðraskólinn en ekki nægilega trúaður til að gerast munkur

Nýlegar greinar