class='com_content view-article layout-blog itemid-190 j62 j40 mm-hover'> Samkynhneigð - Lesbíur óskast - ný skáldsaga Elísabetar Thoroddsen

Lesbíur óskast - ný skáldsaga Elísabetar Thoroddsen

Lesbíur óskast - ný skáldsaga Elísabetar Thoroddsen

Fimm ókunnugar lesbíur eru á leiðinni í matarboð til konu sem kann hvorki að elda né veit hvernig hún á að tala við lesbíur. Þannig hefst ný skáldsaga Elísabetar Thoroddsen, Lesbíur óskast, þar sem óvænt matarboð verður upphafið að sögu um sjálfsmynd, gagnkynhneigð viðmið og það að átta sig á eigin löngunum á fullorðinsárum.

Aðalpersónan Hlín er stödd á tímamótum í lífinu. Hún er að skilja við eiginmann sinn, nýflutt í litla kjallaraíbúð og efast um flestar ákvarðanir sem hún hefur tekið. Þegar hún vaknar skelþunn einn laugardagsmorgun rifjast upp fyrir henni að hún hefur boðið fimm bláókunnugum lesbíum í mat um kvöldið.

Íbúðin er í rúst, peningarnir af skornum skammti og Hlín hefur litla hugmynd um hvernig hún ætlar að halda þetta matarboð. En vandræðin við að undirbúa kvöldið reynast aðeins upphafið að miklu stærri vangaveltum um lífið og eigin sjálfsmynd.

Að skoða lífið í nýju ljósi

Í Lesbíur óskast fylgjumst við með því hvernig Hlín stígur inn í heim sem hún þekkir lítið, mátar sig við nýjar aðstæður og þarf um leið að horfast í augu við eigin hugmyndir og fordóma.

Hingað til hefur hún lifað samkvæmt gagnkynhneigðum viðmiðum, án þess að velta því sérstaklega fyrir sér hvort sú leið hafi í raun verið hennar eigin. Þegar hún fer að skoða fyrri sambönd sín og ákvarðanir í nýju ljósi vakna spurningar sem hún hefur lengi forðast að takast á við.

Sagan hefst á aðstæðum sem bjóða upp á bæði húmor og vandræðagang, en undir niðri er fjallað um alvarlegri málefni. Skömm, kvíði og innbyggðir fordómar koma upp á yfirborðið þegar Hlín reynir að átta sig á því hvað hún sjálf vill og hvernig hún getur haldið áfram með líf sitt.

Þarna er viðfangsefni sem getur átt erindi við marga lesendur: hvernig við mótum líf okkar eftir væntingum samfélagsins og hversu erfitt getur reynst að endurmeta þær þegar við erum komin á fullorðinsár.

Hinsegin sögur í verkum Elísabetar

Elísabet Thoroddsen er fædd árið 1981 og ólst upp bæði í Reykjavík og Danmörku, þar sem hún lærði kvikmyndagerð. Hún hefur starfað við kvikmyndagerð, skrifað handrit og sinnt ýmsum öðrum störfum, en á undanförnum árum hefur hún einnig skapað sér sess sem rithöfundur.

Fyrsta skáldsaga hennar, Allt er svart í myrkrinu, kom út árið 2022. Hún er spennu- og draugasaga fyrir börn og unglinga þar sem ástarsaga tveggja stúlkna, Tinnu og Dóru, fléttast inn í dularfulla atburðarás á sjúkrahúsi úti á landi.

Bókin var tilnefnd til Íslensku bókmenntaverðlaunanna árið 2022 og Barnabókaverðlauna Reykjavíkurborgar árið 2023. Í kjölfarið komu út framhaldsbækurnar Á eftir dimmum skýjum árið 2023 og Undir sjöunda þili árið 2024, þar sem lesendur fylgja Tinnu í nýjum ævintýrum.

Árið 2025 kom einnig út Rugluskógur, myndlýst ævintýrasaga fyrir börn sem Elísabet vann með Bergrúnu Írisi Sævarsdóttur.

Með Lesbíur óskast snýr Elísabet sér nú að fullorðnum lesendum, en hinsegin sjálfsmynd, ástir og samskipti eru áfram áberandi í skrifum hennar. Í stað ástarsögu tveggja unglingsstúlkna er hér sögð saga konu sem þarf að endurskoða líf sitt og fyrri sambönd.

Frá Hinsegin dögum til Ukulellna

Elísabet hefur jafnframt verið virk í íslensku hinsegin menningarlífi um árabil. Hún sat í stjórn Hinsegin daga á árunum 2019 til 2021 og kom meðal annars að ritstjórn hátíðartímaritsins og skipulagningu viðburða.

Hún er einnig ein af stofnendum hljómsveitarinnar Ukulellur, sem er skipuð hinsegin konum, og hefur samið fjölda lagatexta fyrir sveitina. Í þeim fjallar hún meðal annars um lesbískar ástir, staðalímyndir og hversdagslíf miðaldra kvenna, oft með húmorinn að vopni.

Þessi viðfangsefni hafa því lengi verið hluti af listsköpun Elísabetar, hvort sem hún hefur miðlað þeim í tónlist, sögum fyrir ungt fólk eða nú í skáldsögu fyrir fullorðna.

Lesbíur óskast er gefin út af Bókabeitunni árið 2026 og er 252 blaðsíður.

Nánari upplýsingar

Myndir af vef höfundar, útgáfu og af vefnum ugulellurnar.is