Mapplethorpe: Lítið á myndirnar

Mapplethorpe: Lítið á myndirnar

RÚV sýndi heimildarmyndina Mapplethorpe: Lítið á myndirnar 9. desember. Myndin fjallar um ævi og störf hins umdeilda bandaríska ljósmyndara Robert Mapplethorpe.

Mapplethorpe er meðal annars þekktur fyrir opinskáar ljósmyndir sem áttu rætur í BDSM-senu samkynhneigðra karla í New York á níunda áratug síðustu aldar. Verk hans hafa síðar verið sýnd í virtum listasöfnum og galleríum víða um heim.

Heimildarmyndin var aðgengileg á vef RÚV til 8. janúar 2020.

Hér má sjá sýnishorn úr Mapplethorpe: Look at the Pictures. Sýnishornið er á ensku.

Tengdar greinar