Hér er myndband sem sýnir stemninguna á Bears On Ice 2015.
Myndir og myndband: Páll Guðjónsson
Tónlistin undir myndbandinu Lovin' life er eftir Frosta Jónsson / Bistro Boy og söngvarinn er Antony Jackson var tíður gestur á Bears on Ice.
BEARS ON ICE er árlegur not-for-profit viðburður sem byrjaði 2005. Hann er skipulagður af áhugasömum sjálfboðaliðum sem vilja auka fjölbreytileika íslensku gay senunnar og fá til landsins nýjustu strauma í tónlist og skemmtun. Sömu aðilar hafa rekið gayice.is upplýsingaveituna síðan 2003 og Samkynhneigd.is síðan 2017.
Árið 2020 var stofnað félag til að halda utan um viðburðinn með formlegri hætti og nýju fólki og heitir hann nú Reykjavík Bear.