class='com_content view-article layout-blog itemid-317 j62 j40 mm-hover'> Samkynhneigð - „Regnbogafáninn er ekki að fara neitt“

„Regnbogafáninn er ekki að fara neitt“

„Regnbogafáninn er ekki að fara neitt“

Hinsegin dagar 2026 voru settir við Pride Centre í Iðnó þriðjudaginn 4. ágúst. Helga Haraldsdóttir, formaður Hinsegin daga, setti hátíðina formlega og Björg Magnúsdóttir, forseti borgarstjórnar, flutti ávarp áður en regnbogafáninn var dreginn að húni.

Helga minnti í ræðu sinni á yfirskrift hátíðarinnar í ár, „Sameinumst undir regnboganum“, og lagði áherslu á samstöðu og mikilvægi þess að enginn þurfi að standa einn. Hún hvatti fólk jafnframt til að nýta Pride Centre í Iðnó meðan á hátíðinni stæði, hitta gamla vini og kynnast nýju fólki.

Sérstakar þakkir fékk stór hópur sjálfboðaliða sem stendur að hátíðinni. „Þau eru hjartað í Hinsegin dögum,“ sagði Helga og minnti á að hátíðin væri skipulögð af samfélaginu fyrir samfélagið.

„Regnbogafáninn er ekki að fara neitt“

Björg Magnúsdóttir minnti á að gleðigangan væri ekki aðeins hátíð gleði og stolts heldur einnig kröfuganga. Hún sagði þann kraft sem einkenndi Hinsegin daga vera afrakstur hugrakkrar baráttu fyrri kynslóða og varaði við því að réttindi og viðhorf sem áður virtust trygg væru ekki sjálfsögð.

Hún vék sérstaklega að aukinni andúð í garð LGBT+ fólks. „Árið er 2026 og fordómar gagnvart hinsegin samfélaginu eru því miður með comeback,“ sagði Björg.

Björg ræddi einnig nýlegar skipulagsbreytingar hjá Reykjavíkurborg og sagði rangt að þær þýddu að borgin væri að hætta eða draga úr verkefnum á sviði LGBT+ mála og mannréttinda.

„Meirihlutinn í borgarstjórn Reykjavíkur stendur með hinsegin samfélaginu og stendur með mannréttindum,“ sagði hún og bætti við: „Reykjavík er mannréttindaborg og verður það áfram.“

Hún tók jafnframt af allan vafa um framtíð regnbogafánans við Ráðhúsið: „Regnbogafáninn er ekki að fara neitt.“ Hann muni áfram blakta við Ráðhús Reykjavíkur og víðar um borgina á Hinsegin dögum.

Hér má horfa á setningu Hinsegin daga og ræðurnar í heild: