class='com_content view-article layout-blog itemid-166 j62 j40 mm-hover'> Samkynhneigð - Algóritminn og bakslagið – hver stjórnar því sem við hugsum?

Algóritminn og bakslagið – hver stjórnar því sem við hugsum?

images/2026/HateDisguised_FINAL-REPORT-1sq.jpg#joomlaImage://local-images/2026/HateDisguised_FINAL-REPORT-1sq.jpg?width=1922&height=1922
Algóritminn og bakslagið – hver stjórnar því sem við hugsum?

„Hversu mörg ykkar hafa þurft að horfa á bláókunnugt fólk rökræða hvort þið eigið rétt á að vera þið sjálf?“ Þannig hóf Axel Bjarki, átján ára trans strákur, erindi sitt á ráðstefnunni Algóritminn og bakslagið – hver stjórnar því sem við hugsum?, sem haldin var í Reykjavík 11. nóvember.

Á ráðstefnunni var kynnt ný norræn rannsókn á því hvaða efni TikTok og YouTube sýna ungmennum um trans fólk. En umræðan náði langt út fyrir rannsóknina sjálfa. Fjallað var um vaxandi fordóma, áhrif samfélagsmiðla á stjórnmál og lýðræði, ábyrgð tæknifyrirtækjanna og hvað stjórnvöld geta gert til að vernda réttindi fólks á netinu.

Halla Tómasdóttir forseti Íslands flutti ávarp við upphaf ráðstefnunnar og meðal þátttakenda voru fulltrúar Samtakanna ’78, norrænt rannsóknarfólk, stjórnmálamenn, sérfræðingar í netöryggismálum og fulltrúi TikTok.

Erindi Axels Bjarka vakti mikla athygli, enda talaði hann af eigin reynslu um það hvernig það væri að alast upp í heimi þar sem tilvera trans fólks væri sífellt gerð að umræðuefni. Hann beindi jafnframt ákveðnum spurningum til TikTok um ábyrgð fyrirtækisins á því efni sem börnum og ungmennum er sýnt.

Norræn rannsókn á fordómum í dulargervi rökræðu

Ráðstefnan var haldin í tilefni af útgáfu rannsóknarinnar Hate Disguised as Debate: Trans-Related Content in the Feeds of Nordic Youth, sem unnin var á vegum NORDREF, finnsku samtakanna Transfeminiinit og Ofbeldisforvarnaskólans, í samstarfi við meðal annars Samtökin ’78.

Nelly Ruotsalainen, ein þriggja rannsakenda, kynnti niðurstöðurnar og útskýrði hvernig rannsóknin fór fram. Hugmyndin hafði meðal annars kviknað út frá fyrri rannsóknum á því hvernig samfélagsmiðlar geta á skömmum tíma farið að sýna ungum drengjum sífellt meira af kvenfjandsamlegu og öfgakenndu efni. Rannsakendurna langaði að vita hvort svipað væri uppi á teningnum þegar kæmi að efni um hinsegin fólk, sérstaklega trans fólk.

Þau stofnuðu tólf nýja reikninga á TikTok og YouTube í Finnlandi, Svíþjóð og á Íslandi og skráðu þá á fimmtán ára notendur. Reikningarnir voru látnir endurspegla áhuga ungmenna á Harry Potter annars vegar og tölvuleikjum hins vegar. Síðan var fylgst með því hvernig efnið sem birtist á miðlunum breyttist eftir því sem leitað var að ákveðnum orðum og horft á myndskeið.

Alls voru 5.406 myndskeið skoðuð og flokkuð.

Niðurstöðurnar voru að ýmsu leyti jákvæðar. Rúmlega 70% þess efnis sem tengdist trans fólki var styðjandi og þar var meðal annars að finna fræðslu, persónulegar frásagnir og myndskeið þar sem trans fólk deildi reynslu sinni. Rannsakendur fundu því líka sterkt og fjölbreytt samfélag sem gat veitt ungmennum stuðning og hjálpað þeim að finna fólk með svipaða reynslu.

En tæplega 30% efnisins var annaðhvort fjandsamlegt trans fólki eða flokkað sem tvírætt. Það sem vakti sérstaka athygli var hvernig fordómarnir birtust, gjarnan í myndskeiðum sem virtust við fyrstu sýn vera venjulegar rökræður, götuspurningar eða viðtöl þar sem fólk skiptist á skoðunum.

Þar gat til dæmis verið stillt upp lækni með sérþekkingu á málefnum trans fólks andspænis einstaklingi sem dró réttindi þess í efa, eins og hér væru tvö jafn gild sjónarmið til umræðu. Rannsakendur töldu þessa framsetningu sérstaklega varasama, enda væri þannig verið að gera mannréttindi fólks að álitamáli í búningi hlutlausrar umræðu.

TikTok tók mun hraðar við sér

Skýr munur kom fram á TikTok og YouTube. Þegar notendur leituðu að efni um trans fólk fór TikTok mun hraðar að sýna þeim fleiri myndskeið um sama efni. Eftir leit að orðunum trans kids varð breytingin sérstaklega áberandi.

Þetta þarf ekki í sjálfu sér að vera neikvætt. Algóritmarnir geta alveg eins vísað ungmennum á gagnlega fræðslu og jákvæðar fyrirmyndir. Vandinn verður hins vegar meiri þegar þeir fara að sýna fólki ítrekað efni sem vekur ótta, reiði eða aðrar sterkar tilfinningar.

Rannsakendurnir bentu á að það eitt að staldra lengi við myndskeið gæti orðið til þess að meira af svipuðu efni birtist. Algóritminn veit ekki endilega hvort einhver horfir vegna þess að hann er sammála því sem sagt er eða vegna þess að honum blöskrar það.

Einnig kom í ljós að leit að J. K. Rowling, höfundi Harry Potter-bókanna, gat leitt notendur að efni þar sem réttindi trans fólks voru dregin í efa. Sambærileg leit að tölvuleikjastjörnunni PewDiePie hafði ekki sömu áhrif.

Rannsóknin studdi hins vegar ekki þá hugmynd að samfélagsmiðlar væru almennt að þröngva trans-tengdu efni upp á notendur, eins og stundum hefur verið haldið fram í umræðum gegn réttindum trans fólks.

Mikilvægir fyrirvarar við niðurstöðurnar

Nelly fór ítarlega yfir takmarkanir rannsóknarinnar. Reikningarnir voru aðeins tólf og þótt þeir væru skráðir á fimmtán ára börn voru það fullorðnir rannsakendur sem notuðu þá. Þau horfðu jafnframt lengur á myndskeið sem þau töldu fjandsamleg eða umdeild og horfðu í sumum tilvikum tvisvar á þau, meðal annars til að líkja eftir því hvernig fólk getur fest sig við efni sem vekur sterk viðbrögð.

Símarnir sem notaðir voru við rannsóknina voru fyrrverandi sýningarsímar frá Nova sem höfðu verið endurstilltir á verksmiðjustillingar. Nelly sagði þó óvíst hvort einhverjar upplýsingar hefðu varðveist í þeim. Rannsakendurnir notuðu einnig VPN-tengingar til að tengjast netinu frá öðrum stöðum innan hvers lands en heimilum sínum. Hún sagðist ekki vita hvort þessir tæknilegu þættir hefðu haft áhrif á gagnasöfnunina.

Leitirnar fóru fram á ensku og því endurspeglar efnið sem rannsakendurnir skoðuðu fyrst og fremst enskumælandi umræðu á samfélagsmiðlunum, þar á meðal deilur um réttindi trans fólks í Bandaríkjunum og Bretlandi.

Í spurningatímanum kom einnig fram að einn íslenskur TikTok-reikningur hafði skilað stórum hluta þess fjandsamlega efnis sem fannst á miðlinum. Því væri ekki hægt að álykta að íslensk ungmenni fengju almennt meira af slíku efni en ungmenni í hinum löndunum.

Nelly sagði rannsóknina fyrst og fremst vera tilraunaverkefni sem sýndi hversu hratt algóritmarnir gætu brugðist við hegðun notenda. Hún vonaðist til að fjármagni yrði veitt til umfangsmeiri rannsókna, svo hægt yrði að byggja á stærra gagnasafni og draga öruggari ályktanir.

Halla Tómasdóttir: Samkenndin má ekki verða undir

Halla Tómasdóttir forseti Íslands hóf ávarp sitt á því að ræða eiginleika sem við tengjum kannski ekki fyrst og fremst við tækni og gervigreind: samkennd.

Hún minnti á að mannkyninu hefði ekki vegnað vel vegna þess að við værum sterkust eða fljótust allra lífvera, heldur vegna hæfileika okkar til að vinna saman, treysta hvert öðru og sýna umhyggju.

Þessum eiginleikum gæti hins vegar verið ógnað þegar tæknin sem mótaði samskipti okkar væri hönnuð til að fanga athyglina og halda henni sem lengst. Samfélagsmiðlar hefðu fjárhagslegan ávinning af því að fólk héldi áfram að horfa, jafnvel þegar efnið sem því væri sýnt ýtti undir reiði, ótta og sundrungu.

Forsetinn sagðist vona að tæknifyrirtækin hefðu ekki vísvitandi hannað kerfin til að sundra samfélögum. En viðskiptalíkanið gæti engu að síður haft þær afleiðingar, vegna þess að það verðlaunaði það sem héldi athygli fólks, óháð áhrifunum á samfélagið.

Hún sagði börn nú alast upp í tveimur heimum. Í öðrum hefðu samfélög okkar á löngum tíma byggt upp lög, reglur og stofnanir til að vernda þau. Hinn væri stafrænn heimur, þar sem alþjóðleg tæknifyrirtæki réðu miklu um það sem börn sæju og upplifðu.

Að hennar mati væri ekki lengur nóg að ræða hversu margar klukkustundir börn eyddu fyrir framan skjái. Mikilvægara væri að skoða hvernig stafrænt umhverfi mótaði athygli þeirra, hugmyndir um sjálf sig, viðhorf til annarra og skilning þeirra á samfélaginu.

Halla tengdi þetta sérstaklega við niðurstöður norrænu rannsóknarinnar. Þótt hún beindist að trans fólki snerist málið um miklu meira en einn minnihlutahóp. Ef tæknin gæti gert fordóma og fjandskap að eðlilegum hluta opinberrar umræðu gæti það bitnað á hverjum sem væri.

Hún lagði áherslu á að í lýðræðissamfélagi yrði fólk að geta rætt erfið mál og verið ósammála. En það væri munur á því að rökræða hugmyndir og því að draga mannréttindi eða mennsku annarra í efa.

Forsetinn rifjaði einnig upp leiðtogafund Ronalds Reagan og Míkhaíls Gorbatsjovs í Reykjavík árið 1986. Sá fundur hefði sýnt að stórveldi gætu komið saman og reynt að breyta þróun sem virtist óstöðvandi. Nú þyrfti að hennar mati sambærilegt alþjóðlegt átak til að tryggja að gervigreind og önnur ný tækni þjónaði mannkyninu í stað þess að grafa undan því sem héldi samfélögum saman.

Hún hvatti stjórnvöld til að bregðast hraðar við og sagði okkur þegar hafa verið of sein að átta okkur á áhrifum samfélagsmiðla. Við mættum ekki endurtaka þau mistök með gervigreindina.

Axel Bjarki: „Þetta er okkar veruleiki“

Erindi Axels Bjarka vakti mikla athygli. Hann er átján ára trans strákur og tók þátt í ráðstefnunni sem fulltrúi ráðgjafarhóps umboðsmanns barna.

Axel hóf mál sitt á spurningunni um hversu margir í salnum hefðu þurft að horfa á ókunnugt fólk ræða hvort þau ættu rétt á að vera þau sjálf. Fyrir mörg trans börn og ungmenni væri þetta ekki ímynduð staða heldur eitthvað sem þau mættu þegar þau opnuðu samfélagsmiðlana sína.

Hann sagðist sjálfur hafa horft á hundruð myndskeiða þar sem tilvera hans væri gerð að umræðuefni og hefði einnig fengið hatursfull skilaboð og hótanir vegna þess hver hann væri. Honum þætti sláandi að komið væri að því að gera þyrfti sérstaka rannsókn til að sýna hversu eðlilegt það væri orðið að ræða mannréttindi trans fólks eins og þau væru álitamál.

„En fyrir mig og mörg önnur ungmenni sem eru trans eru þetta ekki bara tölur. Þetta er veruleikinn sem við búum við,“ sagði Axel.

Hann fagnaði því að stærstur hluti trans-tengda efnisins í rannsókninni hefði verið jákvæður, en tæplega þriðjungur þess sem börnum væri sýnt væri samt annaðhvort neikvæður í garð trans fólks eða setti réttindi þess fram sem álitamál. Það væri allt of hátt hlutfall þegar mannréttindi, öryggi og mannleg reisn væru annars vegar.

Hann bað viðstadda að hugsa sér þrettán ára barn sem væri rétt að byrja að átta sig á eigin kynvitund. Barnið hefði kannski ekki enn sagt foreldrum sínum eða vinum frá því og opnaði TikTok í von um að finna upplýsingar eða einhvern sem skildi það.

Í staðinn gæti það fengið myndskeið þar sem fullorðið fólk ræddi hvort fólk eins og það ætti yfirhöfuð rétt á að vera það sjálft. Svo birtist annað myndskeið og síðan enn eitt.

Hvað gerði það við sjálfsmynd barns að heyra aftur og aftur að fólk eins og það væri vandamál sem samfélagið þyrfti að leysa?

Axel minnti á að þetta hefði ekki aðeins áhrif á trans börn. Önnur börn sæju efnið líka og lærðu af því. Þegar frægt fólk, áhrifavaldar eða stjórnmálamenn töluðu um trans fólk eins og það væri vandamál gætu ungir áhorfendur farið að trúa því að eitthvað væri að því að vera trans.

„Enginn fæðist með fordóma gagnvart trans fólki. Þeir eru lærðir,“ sagði Axel og bætti við að ef hægt væri að kenna börnum að óttast það sem væri öðruvísi væri líka hægt að kenna þeim skilning og virðingu.

Þess vegna þyrfti fræðslu, ekki aðeins fyrir börn heldur líka fyrir fullorðna fólkið. Það væri ekki hægt að ætlast til þess að börn lærðu að virða annað fólk ef þau sæju ekki slíkt viðhorf hjá þeim sem þau litu upp til.

Beindi kröfum til TikTok

Axel sneri sér sérstaklega að fulltrúa TikTok sem var meðal ráðstefnugesta og spurði hvað fyrirtækið ætlaði að gera þegar rannsóknir sýndu að reikningum sem skráðir væru á fimmtán ára börn væri sýnt efni þar sem réttindi minnihlutahóps væru dregin í efa.

Hann velti því upp hvers vegna ekki væri hægt að merkja myndskeið sem innihéldu staðfestar rangfærslur um trans fólk og birta áreiðanlegar upplýsingar samhliða þeim. Einnig vildi hann að fyrirtækið drægi úr dreifingu hatursfulls og villandi efnis í stað þess að láta algóritmann ýta því áfram til fleiri notenda.

Börn sem leituðu upplýsinga um kynvitund ættu að finna fræðslu og stuðning, ekki endalausar pólitískar deilur um réttindi sín.

Axel sagðist vel skilja að ekki væri hægt að stjórna skoðunum allra á netinu, enda ætti ekki að gera það. En það væri munur á því að leyfa einhverjum að tjá skoðun sína og því að samfélagsmiðill dreifði henni aftur og aftur til barna.

Hann kallaði líka eftir einfaldari leiðum til að tilkynna hatursfullt efni og því að slíkar tilkynningar yrðu teknar alvarlega.

Orð hans beindust þó ekki aðeins að TikTok. Stjórnmálafólk, áhrifafólk og allir sem segðust styðja trans fólk þyrftu að sýna þann stuðning í verki.

Það væri auðvelt að segjast vera bandamaður hinsegin fólks þegar allir í kring væru sammála. En hvað gerðist þegar einhver lét fordóma falla við matarborðið, á vinnustaðnum, í athugasemdakerfi eða úr ræðustól stjórnmálanna? Myndi fólk þá segja eitthvað?

Axel sagðist ekki vilja að næsta kynslóð trans barna þyrfti að ganga í gegnum sömu reynslu og hann sjálfur.

Hann lauk erindi sínu með þessum orðum:

„Trans börn eiga ekki að þurfa að vera hugrökk bara til að vera þau sjálf. Nú er komið að fullorðna fólkinu að sýna hugrekki og standa með þeim.“

Hver ræður því hvað fimmtán ára börn sjá á netinu?

Í fyrri pallborðsumræðunum var rætt um hver hefði í raun mest áhrif á það hvaða hugmyndir ungmenni fengju um kynvitund og réttindi hinsegin fólks.

Þátttakendur voru Tanja von Knorring, framkvæmdastjóri finnsku samtakanna Transfeminiinit, Christian Mogensen frá SASHA SafeShare og fyrrverandi stefnumótunarstjóri Snapchat, Haukur Brynjarsson, sem starfar við fræðslu um öryggi barna á netinu, og María Rut Kristinsdóttir alþingismaður.

Tanja sagðist ekki hafa orðið sérstaklega hissa á niðurstöðum rannsóknarinnar. Í störfum sínum gegn hatursorðræðu á netinu hefði hún séð hvernig samfélagsmiðlar gætu haft áhrif á opinbera umræðu og ýtt undir fordóma. Hún benti jafnframt á að fyrirtækin sem réðu algóritmunum hefðu fjárhagslega hagsmuni af því að notendur eyddu sem mestum tíma á miðlunum, en almenningur hefði takmarkaða innsýn í hvernig ákveðið væri hvaða efni fengi mesta dreifingu.

Christian Mogensen, sem þekkir starfsemi samfélagsmiðlafyrirtækja innan frá eftir störf sín hjá Snapchat, tók undir að viðskiptahagsmunir þeirra skiptu miklu máli, en taldi þó ekki nóg að beina allri gagnrýninni að algóritmunum. Það þyrfti líka að horfa til þeirra sem framleiddu efnið, enda væru sumir meðvitað að nýta sér glufur í reglum samfélagsmiðlanna til að breiða út fordóma án þess að brjóta augljóslega gegn þeim.

Í stað þess að segja beinlínis að trans fólk ætti ekki að njóta mannréttinda væri til dæmis hægt að setja sömu hugmynd fram sem sakleysislega spurningu eða opna rökræðu. Slíkt efni gæti síðan fengið mikla dreifingu vegna þess að það vekti sterk viðbrögð, enda greindu algóritmarnir ekki endilega á milli þess hvort fólk skrifaði athugasemdir til að taka undir það sem sagt væri eða mótmæla því.

Christian taldi litlar líkur á að samfélagsmiðlafyrirtækin gætu sjálf leyst vandann með sífelldum breytingum á eigin reglum, því alltaf fyndist einhver sem reyndi að fara eins langt og reglurnar leyfðu. Hann vildi því að notendur fengju mun meira vald yfir því hvers konar efni þeim væri sýnt og að réttur þeirra til að samþykkja eða hafna ákveðnu efni yrði ríkari þáttur í hönnun samfélagsmiðlanna.

Fordómar sem berast inn í skólana

María Rut Kristinsdóttir rifjaði upp reynslu sína af hinseginfræðslu í skólum og lýsti því hvernig viðhorfin hefðu lengi verið mjög jákvæð. Í kringum árin 2020 og 2021 hefði hins vegar farið að bera á spurningum og athugasemdum sem endurspegluðu umræðu gegn trans fólki á erlendum samfélagsmiðlum.

Hún og samstarfsfólk hennar hefðu farið að velta fyrir sér hvaðan þessar hugmyndir kæmu og þegar þau spurðu nemendurna kom í ljós að margir sæju sambærilegt efni reglulega á netinu.

María Rut nefndi einnig eigin reynslu sem foreldri. Þegar hún sæi það efni sem birtist á samfélagsmiðlum sonar hennar áttaði hún sig á því hversu ólíkan heim börn og fullorðnir upplifðu á netinu. Á meðan hennar eigin samfélagsmiðlar snerust meðal annars um heimilisráð og heilsutengd málefni birtist syninum allt annað efni, þar á meðal deilur um kyn og kynvitund.

Haukur Brynjarsson sagði svipaða sögu úr fræðslu um netöryggi. Ungmenni segðust sjá hatursfullt efni daglega og sum væru farin að venjast því svo mjög að þau brygðust varla lengur við. Á sama tíma heyrði hann meðal sumra drengja og ungra karla mikla áherslu á að mega segja hvað sem þeim sýndist á netinu, jafnvel þótt það særði annað fólk.

Hann velti því upp hvaða áhrif það hefði á samfélagið þegar heil kynslóð yxi úr grasi með sífelldan straum af fjandsamlegu efni í vasanum, jafnvel inni í eigin svefnherbergi. Þótt fræðsla um netið og gagnrýnin hugsun gætu hjálpað væri hún engin töfralausn, ekki síst þegar fullorðna fólkið ætti sjálft oft erfitt með að átta sig á því hvernig hægt væri að hafa áhrif á það í gegnum samfélagsmiðla.

DSA – evrópskar reglur sem eiga að auka ábyrgð samfélagsmiðla

Eitt umræðuefni kom aftur og aftur upp á ráðstefnunni: DSA.

DSA stendur fyrir Digital Services Act, reglugerð Evrópusambandsins um stafræna þjónustu, sem tók að fullu gildi innan ESB í febrúar 2024.

Reglurnar ná til ýmiss konar þjónustu á netinu, en sérstaklega strangar kröfur eru gerðar til stærstu samfélagsmiðlanna, svo sem TikTok, Facebook, Instagram og YouTube.

Hugmyndin er ekki sú að banna allar umdeildar skoðanir eða láta stjórnvöld ákveða hvað fólk megi hugsa. Reglurnar snúast meðal annars um að fyrirtækin verði að taka ábyrgð á því hvernig þjónusta þeirra er hönnuð, hvaða áhættu hún getur skapað og hvernig þau bregðast við þegar eitthvað fer úrskeiðis.

Stóru samfélagsmiðlarnir þurfa til dæmis að rannsaka hvort starfsemi þeirra geti skaðað börn, ýtt undir útbreiðslu ólöglegs efnis, haft neikvæð áhrif á mannréttindi eða grafið undan lýðræðislegri umræðu. Þeir verða síðan að grípa til raunhæfra aðgerða til að draga úr áhættunni.

Fyrirtækin þurfa einnig að veita meiri upplýsingar um hvernig algóritmarnir virka, sæta óháðu eftirliti og gera rannsakendum auðveldara að skoða áhrif þeirra. Notendur eiga jafnframt að fá skýrari upplýsingar þegar efni er fjarlægt eða aðgangur takmarkaður og geta mótmælt slíkum ákvörðunum.

DSA gerir þannig kröfur um meira gagnsæi og eftirlit, en á um leið að standa vörð um tjáningarfrelsi. Fyrirtæki sem brjóta gegn reglunum geta átt yfir höfði sér verulegar sektir, í alvarlegustu tilvikum allt að sex prósent af árlegri heimsveltu þeirra.

 

Af hverju hefur Ísland ekki innleitt DSA?

Þótt reglurnar hafi verið í gildi innan Evrópusambandsins frá árinu 2024 höfðu þær enn ekki verið teknar upp í EES-samninginn þegar ráðstefnan var haldin og því ekki verið innleiddar hér á landi.

Þetta var gagnrýnt á ráðstefnunni.

María Rut Kristinsdóttir alþingismaður sagðist hafa kynnt sér stöðu málsins sérstaklega fyrir ráðstefnuna og þegar hafið að spyrjast fyrir um framgang þess. Hún ætlaði að beita sér fyrir því að innleiðingunni yrði hraðað, þótt Ísland þyrfti að vinna að því í samstarfi við hin EES-ríkin.

Í síðari pallborðsumræðunum tók Páll Rafnar Þorsteinsson, sérfræðingur í menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytinu, undir mikilvægi þess að reglurnar tækju gildi hér á landi. Hann sagði íslensk stjórnvöld enn skorta mikilvæg lagaúrræði til að fylgjast með starfsemi samfélagsmiðlanna og krefja þá um ábyrgð.

Löggjöfin væri þó aðeins einn hluti lausnarinnar. Jafnframt þyrfti að styðja sjálfstæða fjölmiðla og efla fræðslu um samfélagsmiðla, upplýsingalæsi og gagnrýna hugsun, meðal annars í kennaranámi.

ESB hefur þegar gert alvarlegar athugasemdir við TikTok

Aðeins fimm dögum fyrir ráðstefnuna, 6. nóvember, birti framkvæmdastjórn Evrópusambandsins bráðabirgðaniðurstöður rannsóknar þar sem TikTok var talið hafa brugðist skyldum sínum samkvæmt DSA.

Þar var sérstaklega fjallað um það hvernig algóritmi TikTok getur dregið notendur sífellt dýpra inn í ákveðið efni, stundum kallað rabbit hole á ensku. Þegar einhver horfir á eða bregst við myndskeiðum um ákveðið málefni getur miðillinn farið að sýna honum meira og meira af sambærilegu efni.

Framkvæmdastjórnin hafði meðal annars áhyggjur af því hvernig slíkt gæti haft áhrif á fólk sem væri viðkvæmt fyrir efni um andlega vanlíðan, líkamsímynd eða einangrun. Sérstaklega var gagnrýnt að TikTok virtist leggja svo mikið upp úr því hversu lengi fólk horfði á myndskeið að það gæti vegið þyngra en óskir notenda um að sjá minna af tilteknu efni.

Framkvæmdastjórnin taldi að fyrirtækið þyrfti að breyta því hvernig myndskeið væru valin fyrir notendur og gefa þeim meiri stjórn á því sem birtist. Þetta voru þó bráðabirgðaniðurstöður og TikTok hefur rétt til að svara þeim áður en endanleg ákvörðun verður tekin.

Áhyggjurnar eru engu að síður mjög svipaðar þeim sem norrænu rannsakendurnir lýstu: Að fólk geti fengið sífellt meira af efni sem það staldraði við af ótta, reiði eða hneykslun, jafnvel þótt það hafi alls ekki óskað eftir því.

Geta Norðurlöndin varið jafnrétti og lýðræði?

Í síðari pallborðsumræðunum, sem María Rún Bjarnadóttir hjá NORDREF stýrði, var sjónum beint að því hvort norræn samfélög væru nægilega sterk til að standast áhrif samfélagsmiðla á opinbera umræðu.

Þátttakendur voru Kjartan Sverdrup, sem fer með stefnumótun og samskipti TikTok við stjórnvöld í Noregi og á Íslandi, Bergrún Andradóttir frá Samtökunum ’78, Einar Þorsteinsson borgarfulltrúi og Páll Rafnar Þorsteinsson.

Páll Rafnar sagðist telja Norðurlöndin hafa ýmislegt fram yfir önnur samfélög. Þar væru sterkar stofnanir, mikil áhersla á mannréttindi og löng hefð fyrir því að leysa ágreining með samræðum og málamiðlunum. Þessi styrkur gæti þó líka veikst og þegar fólk veigraði sér við að taka þátt í opinberri umræðu af ótta við árásir væri það ekki aðeins slæmt fyrir einstaklinginn heldur líka fyrir lýðræðið.

Einar Þorsteinsson benti á að við töluðum mikið um hvernig gervigreind myndi breyta framtíðinni, en gleymdum stundum að hún hefði þegar haft mikil áhrif á líf okkar í gegnum samfélagsmiðla síðustu tíu til fimmtán árin. Það sem fólki væri sýnt á netinu hefði áhrif á áhugamál þess, skoðanir og jafnvel líðan, en þessi áhrif væru ekki bundin við einstaklinga heldur hefðu líka breytt stjórnmálum og kosningahegðun.

Að hans mati ýttu samfélagsmiðlarnir undir skautun, þar sem efni sem vekti reiði og sterk viðbrögð fengi meiri athygli en yfirveguð umræða. Það gerði stjórnmálafólki erfiðara að ná þeirri sátt sem lýðræðislegt samfélag byggðist á.

Bergrún Andradóttir var ekki jafn sannfærð um að Norðurlöndin stæðu svo vel að vígi sem stundum væri haldið fram. Hún benti á að þótt Ísland kæmi vel út í alþjóðlegum samanburði á jafnrétti væri staðan önnur fyrir fólk sem félli utan hefðbundinna samfélagsnorma. Hinsegin fólk þekkti vel að verða fyrir fordómum og áreiti þrátt fyrir þann árangur sem náðst hefði á sviði jafnréttis.

Hún rifjaði upp rannsóknir á vaxandi hatursorðræðu á netinu og þá auknu andúð sem Samtökin ’78 hefðu orðið vör við, ekki síst í tengslum við Hinsegin daga.

Að hennar mati væri ekki hægt að kenna samfélagsmiðlunum einum um. Stjórnmálafólk og aðrir í valdastöðum bæru líka ábyrgð þegar þeir töluðu um minnihlutahópa með niðrandi hætti, enda gætu samfélagsmiðlarnir magnað upp slík skilaboð og gert þau að áhrifaríku pólitísku vopni.

Hvað svaraði TikTok Axel Bjarka?

Kjartan Sverdrup tók undir að tæknifyrirtækin bæru mikla ábyrgð, þótt hann teldi jafnframt mikilvægt að horfa til jákvæðra áhrifa samfélagsmiðla. Í Noregi væru til dæmis fréttamiðlar og ríkisútvarpið meðal vinsælustu aðilanna á TikTok og gætu þannig náð til fólks sem fylgdist síður með hefðbundnum fjölmiðlum.

Þegar umræðunni var beint að fjandsamlegu efni um trans fólk sneri Kjartan sér sérstaklega að Axel Bjarka og sagðist harma þá reynslu sem Axel hefði lýst af hatri á miðlinum. Hann sagði rannsóknina mikilvægt innlegg í áframhaldandi vinnu TikTok og viðurkenndi að fyrirtækið gerði ekki alltaf nóg til að koma í veg fyrir dreifingu skaðlegs efnis.

Hann benti hins vegar á að úrræði TikTok væru fleiri en að fjarlægja myndskeið eða láta þau standa óbreytt.

Hægt að stöðva dreifingu án þess að eyða myndskeiðum

Kjartan útskýrði að TikTok gæti brugðist við efni með ýmsum hætti, eftir því hvers eðlis það væri og í hvaða samhengi það birtist. Fyrirtækið gæti fjarlægt myndskeið, lokað reikningum eða sett aldurstakmarkanir á ákveðið efni, en það gæti líka ákveðið að tiltekin myndskeið skyldu ekki birtast í For You, þeim straumi myndskeiða sem TikTok velur sjálfkrafa fyrir hvern notanda.

Þetta síðastnefnda er sérstaklega áhugavert í samhengi við rannsóknina og kröfur Axels.

Myndskeið geta þá áfram verið aðgengileg þeim sem leita sérstaklega að þeim, en TikTok hættir að ýta þeim sjálfkrafa til annarra notenda. Þannig er hægt að draga verulega úr dreifingu efnis án þess að fjarlægja það alveg.

Kjartan tók dæmi frá Noregi, þar sem foreldrar höfðu notað sérstaka draugasíu í símanum til að hrekkja börnin sín. Foreldrarnir sendu börnin inn á baðherbergi, létu þau horfa í myndavélina og segja „Hello Barbara“, en þá birtist skyndilega draugur fyrir aftan þau á skjánum og hræddi þau. Viðbrögð barnanna voru tekin upp og myndskeiðunum síðan dreift á samfélagsmiðlum.

Kjartan sagði hegðun foreldranna óásættanlega, en samfélagsmiðlarnir bæru líka ábyrgð á því að slík myndskeið fengju ekki óhefta dreifingu. TikTok hefði því ákveðið að hætta að sýna þau sjálfkrafa í straumi notenda og jafnframt fjarlægt grófustu myndskeiðin.

Þarna væri hægt að beita úrræðum sem fælu hvorki í sér að allt efni væri bannað né að miðillinn héldi áfram að dreifa því án takmarkana.

Þetta er einmitt sá munur sem Axel hafði bent á. Tjáningarfrelsi felur ekki sjálfkrafa í sér að samfélagsmiðlar þurfi að dreifa öllu efni til sem flestra, sérstaklega þegar börn eiga í hlut.

Nærri 90 þúsund myndskeið fjarlægð á Íslandi

Kjartan kynnti einnig tölur um aðgerðir TikTok gegn efni sem braut gegn reglum fyrirtækisins á Íslandi.

Kjartan sagði tölurnar ná yfir tímabilið frá 25. janúar 2025 og fram í september 2026.

Á því tímabili hefðu 89.649 myndskeið verið fjarlægð af TikTok á Íslandi. Þar af hefðu 88.125 verið fjarlægð sjálfvirkt, með aðstoð gervigreindar, áður en nokkur notandi sá þau.

Af þeim myndskeiðum sem fjarlægð voru nefndi hann sérstaklega 1.088 tilvik vegna hatursorðræðu eða hatursfullrar hegðunar, 804 vegna öfgahyggju og 11.825 vegna efnis sem tengdist öryggi barna og ungmenna, meðal annars einelti og áreitni.

Auk þess hefðu 29.494 reikningum verið lokað, þar af 8.411 vegna gruns um að notendur væru yngri en þrettán ára.

Kjartan sagði TikTok einnig hafa aðgang að fólki sem gæti farið yfir íslenskt efni og athugasemdir og gripið inn í þegar reglur fyrirtækisins væru brotnar, þótt ekki næðist að finna allt sem ætti að fjarlægja.

Tölurnar gefa ákveðna mynd af umfangi eftirlitsins, en segja ekki sérstaklega til um hversu mörg myndskeið gegn trans fólki voru fjarlægð eða hversu mikið af slíku efni var áfram í dreifingu.

Mun TikTok breyta algóritmanum?

Þegar Einar Þorsteinsson spurði Kjartan hvort rannsóknin myndi leiða til breytinga á algóritma TikTok svaraði hann léttur í bragði að hann færi aftur á hótelið og sneri á rofa.

Hann bætti þó við að hann myndi fara með niðurstöður rannsóknarinnar inn í fyrirtækið og að slíkar rannsóknir, ásamt opinberri umræðu og þrýstingi, væru mikilvægar til að bæta starfsemina.

Það var hins vegar ekki loforð um að ákveðnum breytingum yrði hrint í framkvæmd.

Kjartan svaraði heldur ekki öllum tillögum Axels sérstaklega. Til dæmis kom ekki fram hvort TikTok hygðist merkja rangfærslur um trans fólk með fræðsluefni eða gera breytingar á því hvaða upplýsingar börn fengju þegar þau leituðu að efni um kynvitund.

Hins vegar staðfesti hann að fyrirtækið hefði þegar tæknilegar leiðir til að takmarka dreifingu skaðlegs efnis, jafnvel þótt ekki væri ástæða til að fjarlægja það alveg.

Spurningin er því ekki aðeins hvað TikTok getur gert, heldur líka hvenær og hvernig fyrirtækið ákveður að beita þessum úrræðum.

Hvað með hótanir og áreitni?

Undir lok umræðunnar var Kjartan spurður um alvarlegt áreiti á netinu og ábyrgð samfélagsmiðlanna þegar notendum væri hótað eða þeir yrðu fyrir annarri refsiverðri hegðun.

Hann sagði TikTok eiga í samstarfi við íslensku lögregluna og að fyrirtækið gæti varðveitt IP-tölur og aðrar upplýsingar sem skiptu máli við rannsókn sakamála.

Það væri því ekki svo að fyrirtækið stæði utan allra laga þótt DSA hefði ekki verið innleitt á Íslandi.

Kjartan taldi jafnframt að það væri fyrirtækinu sjálfu í hag að draga úr skaðlegu efni. Ef miðillinn fylltist af slíku efni myndi fólk að lokum missa áhugann á að nota hann og það kæmi niður á rekstrinum.

Í salnum var þó bent á að þarna væri líka ákveðin mótsögn. Tekjur samfélagsmiðlanna byggðust að miklu leyti á athygli notenda og efni sem vekti reiði og sterk viðbrögð gæti haldið fólki lengur á miðlunum. Því væri eðlilegt að spyrja hvort fyrirtækin hefðu nægilega sterkan fjárhagslegan hvata til að breyta kerfunum í grundvallaratriðum.

Samfélagsmiðlar geta líka verið líflína

Þótt mikið væri rætt um hættur samfélagsmiðla voru þátttakendur ekki allir sammála um að hert aldurstakmörk eða bann við notkun þeirra væru besta leiðin fram á við.

Bergrún Andradóttir frá Samtökunum ’78 minnti á að samfélagsmiðlar gætu verið líflína fyrir hinsegin ungmenni, sérstaklega þau sem byggju í dreifbýli eða ættu erfitt með að finna fólk með svipaða reynslu í nærumhverfi sínu.

Fyrir sum ungmenni væri netið staðurinn þar sem þau uppgötvuðu í fyrsta sinn að þau væru ekki ein, að annað fólk upplifði sömu tilfinningar og að til væri samfélag sem tæki þeim eins og þau væru. Þetta mætti ekki gleymast þegar rætt væri um að takmarka aðgang barna að samfélagsmiðlum.

Bergrún talaði jafnframt um mikilvægi Hinsegin félagsmiðstöðvarinnar í Reykjavík, sem hún sagðist sjálf hafa óskað þess að væri til þegar hún var yngri. Um leið benti hún á að í raun ættu allar félagsmiðstöðvar að vera opnar og öruggar fyrir hinsegin ungmenni.

Einar Þorsteinsson lagði meiri áherslu á hættuna sem fylgdi samfélagsmiðlanotkun barna og nefndi meðal annars einelti, áreitni og ógnir sem gætu fylgt börnum inn í skólana og heim til þeirra.

Hann taldi nauðsynlegt að foreldrar, kennarar og sveitarfélög tækju mun fastar á þessum málum, meðal annars með skýrari reglum um símanotkun í skólum og virðingu fyrir aldurstakmörkum samfélagsmiðla.

Í umræðunum kom þó líka fram að aldurstakmörk ein og sér myndu ekki leysa vandann. Kjartan benti á að foreldrar og börn lifðu oft mjög ólíku stafrænu lífi og því væri mikilvægt að þau ræddu saman um það sem börnin sæju og upplifðu á netinu.

Kennarar þurfa líka stuðning

Í spurningum úr sal var vakin athygli á hlutverki skólanna í að verja lýðræðisleg gildi, mannréttindi og gagnrýna hugsun.

Fulltrúi kennara benti á að skólar ættu samkvæmt lögum að fræða börn um jafnrétti og mannréttindi, en kennarar gætu jafnframt orðið fyrir árásum og ásökunum um innrætingu þegar þeir ræddu trans málefni eða önnur umdeild samfélagsmál.

Bergrún tók undir að ekki mætti láta slíkan þrýsting verða til þess að hinseginfræðsla hyrfi úr skólastarfi. Börn þyrftu að fá að kynnast fjölbreytileika samfélagsins og kennarar þyrftu að vita að þeir hefðu stuðning þegar þeir tækju þessi mál fyrir.

Páll Rafnar lagði sérstaklega áherslu á að kenna börnum og ungmennum að meta upplýsingar með gagnrýnum hætti. Slík kennsla ætti ekki aðeins heima í grunn- og framhaldsskólum heldur þyrfti líka að vera hluti af menntun kennara.

Frá rannsóknum til aðgerða

Undir lok ráðstefnunnar var kynnt framhaldsverkefnið Find Your (Algo)Rhythm, sem byggir á niðurstöðum rannsóknarinnar.

Markmiðið er að hjálpa ungmennum, foreldrum og kennurum að skilja betur hvernig algóritmar samfélagsmiðla virka og hvernig hægt er að hafa meiri áhrif á það efni sem birtist á skjánum.

Þar verður meðal annars kennt hvernig hægt er að endurstilla það sem TikTok og aðrir miðlar sýna notendum, hreinsa eða breyta áhorfssögu og nota þær stillingar sem þegar eru í boði til að hafa meiri stjórn á eigin upplifun.

Áætlað er að halda tilraunavinnustofur frá janúar fram í maí á næsta ári, meðal annars sex fyrir ungmenni og þrjár fyrir foreldra á Íslandi, auk sambærilegra vinnustofa í Finnlandi. Unnið verður að fræðsluefni á íslensku, finnsku, sænsku og ensku.

Aðstandendur verkefnisins vonast til að þetta verði aðeins upphafið og að hægt verði að bjóða fleiri skólum, foreldrum og ungmennum upp á slíka fræðslu á næstu árum.

Tanja von Knorring, framkvæmdastjóri Transfeminiinit, flutti lokaorð ráðstefnunnar. Hún sagði að þótt mikið hefði verið rætt um vankanta samfélagsmiðla væri líka ástæða til að nefna það sem vel væri gert. Í finnsku eftirlitsverkefni með viðbrögðum samfélagsmiðla við hatursfullu efni hefði TikTok til dæmis staðið sig best þeirra miðla sem skoðaðir voru.

En hún taldi ljóst að miklu meira þyrfti til. Rannsóknirnar, umræðurnar og fræðslan væru mikilvægar, en skiluðu litlu ef ekkert breyttist í kjölfarið.

Það var einnig það sem Axel Bjarki hafði minnt á fyrr um daginn. Fyrir börn og ungmenni sem alast upp við að tilvera þeirra sé sífellt gerð að deilumáli er ekki nóg að fullorðna fólkið ræði vandann og sammælist um að gera þurfi eitthvað.

Það þarf líka að gera það.

Nánari upplýsingar: Hate Disguised as Debate – rannsóknarskýrslan (PDF) · Reglur ESB um stafræna þjónustu (DSA) · Bráðabirgðaniðurstöður ESB um TikTok frá 6. nóvember 2026

Tengdar greinar