Freyja heldur norður – gleðiganga, uppistand og hinsegin hátíð á Sauðárkróki

Freyja heldur norður – gleðiganga, uppistand og hinsegin hátíð á Sauðárkróki

Hinsegin hátíð Skagafjarðar nær hámarki á Sauðárkróki í dag, laugardaginn 15. ágúst, með gleðigöngu, tónlist og dagskrá á Kirkjutorgi. Um kvöldið tekur Sindri Freyja Bjarnabur svo við á Sauðá með nýja uppistandssýningu sem ber hið ómótstæðilega nafn Freyja kynvillist um landið.

„Norðurland! Ég verð með nýja sýningu á Sauðá á Sauðárkróki,“ skrifar Sindri á Facebook. Sýningin hefst klukkan 21 og frítt er inn.

Gleðiganga um Sauðárkrók

Hinsegin hátíð Skagafjarðar hófst 10. ágúst og dagskráin hefur teygt sig víða um héraðið. Regnbogavörur, fánasmiðja, sérstakir matseðlar, kaffihús og ýmsir minni viðburðir hafa sett svip sinn á vikuna og íbúar og fyrirtæki verið hvött til að flagga regnbogafánum.

Alla dagskrá hátíðarinnar má sjá á vef Skagafjarðar.

Í dag var síðan komið að stóra deginum. Fólk safnaðist saman við Faxatorg áður en gleðigangan fór frá Safnahúsinu að Kirkjutorgi. Skólasamfélagið í Skagafirði fór fyrir göngunni og á torginu tók Sindri Sparkle við sem kynnir. Ragga Holm þeytti skífum, Magnús Barðdal sveitarstjóri og Vala Stefánsdóttir fluttu hátíðarræður og Ágúst Bryngjarsson sá um lokaatriðið.

 

Freyja kynvillist um landið

Í kvöld færist dagskráin yfir á Sauðá og þá er komið að Freyja kynvillist um landið.

Sindri hefur lengi blandað saman uppistandi, fræðslu, hönnun og LGBT+ málefnum. Regnbogafánarnir hafa þar fengið töluvert pláss, enda hefur Sindri sökkt sér býsna rækilega ofan í sögu þeirra.

BA-verkefni háns, Room For Everyone: A History of Pride Flags, fjallaði um sögu og merkingu hinna fjölmörgu fána sem orðið hafa til innan LGBT+ samfélagsins. Sú vinna þróaðist síðan áfram og í júní kom út bókin A Pocket Guide to Pride Flags: An Illustrated History of Queer Community Symbols hjá bandaríska forlaginu Microcosm Publishing. Þar eru teknir fyrir meira en 30 fánar, uppruni þeirra, merking, fólkið sem hannaði þá og stundum deilurnar sem hafa fylgt þeim.

Sindri hannaði líka veggspjald um hinsegin fánana sem var til sölu í Kaupfélagi Hinsegin daga í Iðnó á hátíðinni í Reykjavík í sumar. Fánarnir hafa þannig ratað hjá Sindra í lokaverkefni, bók, grafíska hönnun, fræðslu og uppistand – og það er greinilega enn ýmislegt hægt að gera við þá.

Á kynningarmyndinni fyrir nýju sýninguna er innihaldinu lýst ágætlega: „uppistand – tónlist – ljóð – fáránleiki – fræðsla – allskonar“.

Freyja kynvillist um landið hefst á Sauðá klukkan 21. Aðgangur er ókeypis.

Viku eftir að grjóti var kastað að þeim

Það er þó ekki langt síðan Sindri upplifði mun óskemmtilegri hlið á því að vera sýnilegt LGBT+ fólk á Íslandi.

Viku áður, eftir Gleðigöngu Hinsegin daga í Reykjavík, voru Sindri og eiginmaður háns á leið heim í brúðarfötunum sínum þegar hópur ungra manna kastaði grjóti í átt að þeim í Vesturbænum. Sindri sagði í viðtali við Vísi að einn steinninn hefði lent aðeins um hálfum metra frá höfði háns.

Sindri sagði jafnframt að þetta væri nákvæmlega ástæðan fyrir því að fólk mætti í Gleðigönguna. Pride væri ekki bara hátíð heldur líka mótmæli og baráttunni lyki ekki þegar fánarnir væru teknir niður að göngu lokinni.

Það gefur ferðinni norður svolítið annað samhengi. Viku eftir að grjóti var kastað að Sindra fyrir að vera sýnilegt á götum Reykjavíkur stendur hán á sviði á Sauðárkróki, kynnir hátíðardagskrá og býður síðan upp á uppistand, tónlist, ljóð, fræðslu og fáránleika um kvöldið.

Pride hefur teygt sig um landið í sumar

Skagafjörður er heldur ekki einn á báti. Það hefur verið óvenju mikið um LGBT+ viðburði utan höfuðborgarsvæðisins í sumar og þeir eru alls ekki allir steyptir í sama mót.

Hinsegin hátíð á Norðurlandi eystra var haldin í annað sinn dagana 18.–21. júní. Hátíðin er samstarf sveitarfélaga á Norðurlandi eystra, Hinsegin Norðurlands og Hinsegin hátíðarinnar í Hrísey og dagskráin dreifðist um landshlutann.

Hinsegin Hrísey var þar að sjálfsögðu með. Þar var meðal annars gleðiganga, regnbogamessa, sundlaugardiskó, tónlist og hinn sérlega hrísíski gleðiakstur á traktorum.

Á Austurlandi hefur Regnbogahátíð Hinsegin Austurlands verið enn dreifðari. Í stað þess að safna öllu saman á einum stað var hátíðin teygð yfir þrjár vikur og færð á milli byggðarlaga.

Á Vestfjörðum voru svo Hýrlegheit á Ísafirði 7. ágúst. Þar var safnast saman við kirkjuna, gengið um bæinn og yfir Silfurtorg áður en endað var á Heimabyggð með drykk og karókíi.

Það er ekkert eitt rétt form á Pride-hátíð á landsbyggðinni. Í Hrísey komast traktorar inn í gleðina, fyrir austan ferðast hátíðin á milli bæja og í Skagafirði taka skólar, kaffihús, verslanir, veitingastaðir og heimafólk þátt með sínum hætti.

Það þarf heldur ekki allt að líta út eins og Hinsegin dagar í Reykjavík. Stundum er það einmitt kosturinn að hátíðin verði svolítið eins og staðurinn þar sem hún er haldin.

Og á Sauðárkróki verður lokaorðið í kvöld hjá Freyju, sem ætlar að kynvillast um landið með uppistandi, tónlist, ljóðum, fræðslu, fáránleika og „allskonar“.

Freyja kynvillist um landið hefst á Sauðá klukkan 21 í kvöld. Frítt er inn.

Tengdar greinar