Ravi Roth með nýja sýningu í Reykjavík

Ravi Roth með nýja sýningu í Reykjavík

Ravi Roth kemur til Reykjavíkur með eins manns kabarettinn Ravi Round The World: An Influencer in the Wild. Sýningin hefur þegar vakið athygli í New York, þar sem uppselt var, og verður sýnd á Center Hotels Plaza miðvikudaginn 2. september kl. 18. Páll Óskar verður sérstakur gestur kvöldsins.

Ravi hefur undanfarin ár ferðast um heiminn undir merkjum Ravi Round The World og fjallað sérstaklega um LGBT+ ferðalög og samfélög. Í An Influencer in the Wild snýr hann hins vegar kastljósinu að sjálfum sér og segir söguna á bak við ferðalögin, samfélagsmiðlana og leitina að frægð, ást og mannlegum tengslum.

Sýningin blandar saman tónlist, gamanleik, frásögn og margmiðlun og rekur leið Ravi frá uppvextinum í Scranton í Pennsylvaníu til ferðalaga um heiminn. Michael Ferrara leikur með honum á píanó og Páll Óskar kemur fram sem sérstakur gestur í Reykjavík.

Ravi segir sjálfur að Reykjavík verði alþjóðleg frumsýning An Influencer in the Wild. Sýningin hefur áður verið flutt í Bandaríkjunum, meðal annars í The Green Room 42 í New York. Cheryl Stern leikstýrir og Michael Ferrara annast tónlistarstjórn.

Frá leiksviðinu út í heim

Ferill Ravi hófst þó ekki á samfélagsmiðlum. Hann á að baki feril í leikhúsi og hefur meðal annars leikið í Altar Boyz og A Letter to Harvey Milk auk þess að ferðast um Bandaríkin með uppfærslum á Seussical og White Christmas.

Síðar tóku ferðalögin meira pláss. Undir merkjum Ravi Round The World hefur hann heimsótt tugi landa og gert þætti og myndbönd um LGBT+ ferðalög, menningu og mannlíf.

Í An Influencer in the Wild mætast þessir tveir heimar. Ravi er aftur kominn á sviðið, en að þessu sinni er efniviðurinn hans eigið líf – ævintýrin, metnaðurinn, LGBT+ gleðin og það sem leynist á bak við lífið sem birtist á skjánum.

Ravi hefur áður tekið púlsinn á Íslandi

Þetta verður ekki fyrsta heimsókn Ravi til Íslands. Hann hefur áður ferðast hér um og árið 2023 birti hann ferðamyndband þar sem hann tekur áhorfendur með sér um Reykjavík og víðar um landið.

Í myndbandinu blandar hann saman hefðbundnum ferðaráðum og LGBT+ sjónarhorni sínu og kemur meðal annars inn á Reykjavík Pride. Hann fjallaði síðar nánar um Íslandsferðina á Ravi Round The World, þar sem meðal annars koma við sögu Reykjavík, Suðurland, Gullni hringurinn og íslenskar laugar.

Nú snýr Ravi aftur til Reykjavíkur, en í þetta sinn verður hann á sviðinu. Kvöldið á Center Hotels Plaza er jafnframt upphitun fyrir Reykjavík Bear 2026, sem hefst daginn eftir.

Happy Hour hefst kl. 17 og sýningin sjálf kl. 18. Miðaverð er 2.990 kr.

Miðar og nánari upplýsingar

Mynd af Instagram

Tengdar greinar