Hump Day Social hitar upp fyrir Reykjavík Bear

Hump Day Social hitar upp fyrir Reykjavík Bear

Það verður sannkölluð bangsastemning á Hump Day Social miðvikudaginn 2. september þegar mánaðarlegi hittingurinn tekur höndum saman við Reykjavík Bear. Hittingurinn verður á Bryggjuhúsinu við Vesturgötu frá kl. 19 til 22.

Reykjavík Bear hefst daginn eftir og því er Hump Day kjörið tækifæri til að hitta bæði heimamenn og fyrstu bangsana sem eru komnir til landsins fyrir hátíðina, fá sér eitthvað að drekka og kynnast nýju fólki.

The Hump Day Social er mánaðarlegur hittingur homma í Reykjavík og hefur verið haldinn frá árinu 2017. Hugmyndin er einföld: að skapa afslappaðan vettvang þar sem hægt er að hittast, spjalla og kynnast fólki án þess að vera á hefðbundnu djammi.

Reykjavík Bear × Hump Day Social
Miðvikudagur 2. september
Kl. 19:00–22:00
Bryggjuhúsið, Vesturgötu 2, Reykjavík

Nánari upplýsingar á Facebook

Tengdar greinar