Bangsarnir fjölmenna til Reykjavíkur í byrjun september þegar Reykjavík Bear verður haldið dagana 3.–6. september. Dagskráin teygir sig yfir fjóra daga, en það þarf ekki að taka alla helgina til að vera með – þrjú kvöld í röð verður hægt að slást í hópinn í miðbænum.
Reykjavík Bear er hátíð fyrir karla, cis, trans og kynsegin fólk með karllæga kyntjáningu. Laugardagskvöldið sker sig þó úr, því bæði Mr. Reykjavík Bear sýningin og After Dark eftirpartíið eru opin öllum, óháð kyni.
Fimmtudagur: Byrjað á Petersen svítunni
Helgin hefst með Welcome Party á Petersen svítunni fimmtudaginn 3. september. Þar hittast íslenskir bangsar og gestir sem eru komnir til landsins fyrir helgina yfir drykk og tónlist og stemningin fær að byggjast upp fyrir það sem fram undan er.
Petersen svítan opnar kl. 20.

Föstudagur: Bolirnir fá að fjúka á Top-Off!
Á föstudagskvöldinu færist fjörið á Kiki Queer Bar og 22 Bar þar sem Top-Off! Party hefst kl. 21. Nafnið gefur ágætis vísbendingu um stemninguna: dans, daður og berir bangsar eru það sem Reykjavík Bear lofar.
DJ Mighty Bear og gestir sjá um tónlistina og gogo-bangsarnir TeddyBiggz og Adam Jones sjá um að halda hitanum uppi.
Stakur miði á Top-Off! kostar 3.000 kr.

Laugardagur: Hver verður Mr. Reykjavík Bear?
Á laugardagskvöldinu færist Reykjavík Bear í Austurbæjarbíó og þá eru allir velkomnir. Þar verður Mr. Reykjavík Bear 2026 valinn í annað sinn.
Húsið opnar kl. 19 með meet & greet þar sem hægt verður að hitta keppendurna áður en sýningin hefst kl. 20. Þrír keppa um titilinn í ár: Karl Óskar, Ormur og Snorri.

Keppendurnir sýna þrjár ólíkar hliðar á sér – hversdagsbangsann, kynþokkafulla sjálfið og flottasta bangsann – auk þess að stíga á svið í hæfileikakeppni.
Faye Knús og Broody Valentino stýra kvöldinu og einnig koma fram Margrét Maack, Jeffre Scott og Hinsegin bangsarnir. Gogo-bangsarnir TeddyBiggz og Adam Jones sjá um að halda stemningunni gangandi.
Nýr Mr. Reykjavík Bear verður krýndur fyrir kl. 23. En þar með er laugardagskvöldinu langt frá því lokið.

After Dark fram á nótt
Um leið og keppninni lýkur tekur Reykjavík Bear After Dark við í Austurbæjarbíói. DJ Neal O'Hara frá FUR í Dublin tekur við tónlistinni og dansað verður til kl. 2:30.
After Dark er, líkt og Mr. Reykjavík Bear sýningin fyrr um kvöldið, opið öllum kynjum. Aðgangur á eftirpartíið eitt og sér kostar 3.000 kr. við innganginn og er einnig innifalinn í miða á Mr. Reykjavík Bear og Reykjavík Bear pössum.
Stakur miði á Mr. Reykjavík Bear sýninguna og After Dark kostar 6.000 kr.
Miðar og nánari upplýsingar hjá Reykjavík Bear
Meira en bara partí
Kvöldskemmtunin er aðeins hluti af Reykjavík Bear helginni. Yfir daginn er boðið upp á fjölbreytta dagskrá og ferðir fyrir þá sem vilja gera meira úr helginni.
Meðal þess sem er á dagskrá eru matarferð um Reykjavík, Gullni hringurinn, Laugarás Lagoon, Lava Show og FlyOver Iceland. Á laugardeginum er farið í Sky Lagoon og helginni lýkur með bröns á Bryggjuhúsinu á sunnudag.
Í boði eru mismunandi pakkar eftir því hversu mikið fólk vill taka þátt í. Party Pass kostar 10.000 kr. og hentar þeim sem vilja fyrst og fremst mæta á kvöldviðburðina, en einnig er hægt að kaupa staka miða á einstaka viðburði.
Sjá alla dagskrá Reykjavík Bear 2026

Svona var stemningin í fyrra
Fyrir þá sem vilja fá smá tilfinningu fyrir því hvernig Reykjavík Bear helgin lítur út má hér sjá svipmyndir frá hátíðinni 2025: