class='com_content view-article layout-blog itemid-104 j62 j40 mm-hover'> Samkynhneigð - Child Eater snýr aftur í Bíó Paradís – tíu árum eftir frumsýningu

Child Eater snýr aftur í Bíó Paradís – tíu árum eftir frumsýningu

Child Eater snýr aftur í Bíó Paradís – tíu árum eftir frumsýningu

Íslensk-ameríska hryllingsmyndin Child Eater, fyrsta kvikmynd leikstjórans Erlings Óttars Thoroddsens í fullri lengd, verður sýnd á ný í Bíó Paradís laugardaginn 14. nóvember í tilefni þess að tíu ár eru liðin frá frumsýningu hennar. Erlingur verður sjálfur á staðnum og að sýningu lokinni gefst áhorfendum tækifæri til að spjalla við hann og tónskáld myndarinnar.

Child Eater var frumsýnd á Brooklyn Horror Film Festival í New York haustið 2016 og var lokamynd hátíðarinnar. Hún var síðan sýnd í Bíó Paradís sama haust og vakti athygli sem íslensk-amerísk hrollvekja í anda klassískra hryllingsmynda níunda og tíunda áratugarins.

Myndin segir frá barnfóstrunni Helen sem lendir í martraðarkenndum atburðum þegar Lucas litli, drengurinn sem hún gætir, hverfur sporlaust úr rúminu sínu um miðja nótt. Leitin að honum leiðir hana inn í dimman skóg þar sem Robert Bowery, dularfull persóna úr óhugnanlegri þjóðsögu, er sagður ræna börnum til að éta úr þeim augun.

Á undan aðalmyndinni verður sýnd samnefnd stuttmynd Erlings frá 2012, sem varð kveikjan að kvikmyndinni í fullri lengd. Stuttmyndin var gerð þegar Erlingur stundaði nám við Columbia-háskóla í New York og var sýnd á fjölmörgum kvikmyndahátíðum, meðal annars SXSW í Bandaríkjunum og RIFF á Íslandi.

Stikla úr Child Eater (2016)

Horfa á stikluna á Vimeo

Hinsegin hryllingsmyndagerð

Erlingur hefur sjálfur vakið athygli á afmælissýningunni í Facebook-hópunum Hommaspjallið og Hinseginspjallið. Þar bendir hann meðal annars á að þótt Child Eater sé ekki beinlínis hinsegin kvikmynd megi finna ákveðinn hinsegin undirtón í henni.

Erlingur hefur áður fjallað um tengsl hinseginleika og hryllingsmynda. Í viðtali við Queer Horror Movies árið 2019 ræddi hann hvernig eigin reynsla sem samkynhneigður kvikmyndagerðarmaður hefði áhrif á sköpun hans, stundum með augljósum hætti en stundum aðeins í undirtextanum.

Hann hefur jafnframt bent á að hryllingsmyndir geti verið áhugaverður vettvangur til að fjalla um hinsegin reynslu. Ótti, leyndarmál, utangarðstilfinning og sú tilfinning að passa ekki inn í umhverfi sitt eru kunnugleg viðfangsefni hryllingsmynda, en geta einnig haft sérstaka merkingu fyrir hinsegin áhorfendur.

Rökkur og fleiri myndir Erlings

Árið eftir Child Eater sendi Erlingur frá sér íslensku hrollvekjuna Rökkur (Rift), þar sem samband tveggja samkynhneigðra karla er í forgrunni.

Myndin segir frá Gunnari sem fær símtal frá fyrrverandi kærasta sínum, Einari, og fer að heimsækja hann í afskekktan sumarbústað á Snæfellsnesi. Þar þurfa þeir ekki aðeins að horfast í augu við óuppgerð mál úr sambandinu heldur einnig óhugnanlega atburði sem þeir kunna enga skýringu á.

Rökkur var lokamynd kvikmyndahátíðarinnar í Gautaborg árið 2017 og hlaut viðurkenningu fyrir listrænan árangur á hinsegin kvikmyndahátíðinni Outfest í Los Angeles sama ár.

Myndin er nú aðgengileg í Sjónvarpi RÚV, þar sem hægt er að horfa á hana til 23. nóvember 2026. Samkynhneigd.is fjallaði um Rökkur þegar hún kom út árið 2017.

Stikla úr Rökkri / Rift (2017)

Horfa á stikluna á Vimeo

Erlingur hefur síðan unnið að fleiri hryllingsmyndum, bæði á Íslandi og erlendis. Árið 2019 skrifaði hann handritið að Midnight Kiss, hinsegin hryllingsmynd úr þáttaröðinni Into the Dark, sem framleidd var fyrir Hulu af Blumhouse. Þar segir frá hópi samkynhneigðra vina sem safnast saman til að fagna áramótunum, en hátíðin breytist í martröð þegar morðingi kemur til sögunnar. Carter Smith leikstýrði myndinni.

Árið 2023 leikstýrði Erlingur Kulda (Cold), kvikmynd byggðri á samnefndri spennusögu Yrsu Sigurðardóttur. Árið 2024 kom síðan út The Piper, alþjóðleg hryllingsmynd sem byggist lauslega á þjóðsögunni um rottuveiðarann frá Hameln. Í henni eru tónlist og yfirnáttúrulegar ógnir í aðalhlutverki.

Afmælissýning með leikstjóranum

Afmælissýning Child Eater verður í Bíó Paradís laugardaginn 14. nóvember klukkan 21. Á undan myndinni verður sem fyrr segir sýnd stuttmyndin sem varð upphafið að verkefninu.

Erlingur verður viðstaddur ásamt Einari Sv. Tryggvasyni, tónskáldi myndarinnar, og munu þeir svara spurningum áhorfenda að sýningu lokinni. Þeir sem vilja halda kvöldinu áfram geta síðan hitt þá á Regnbogabarnum í Bíó Paradís.

Myndin er sýnd á ensku án texta og er ekki ætluð börnum yngri en 16 ára.

Miðar og nánari upplýsingar á vef Bíó Paradísar.

Tengdar greinar

Nýlegar greinar