Alþjóðleg kvikmyndahátíð í Reykjavík, RIFF, fer fram í Háskólabíói 24. september til 4. október. Á RIFF verða sýndar ýmsar myndir þar sem samkynhneigð, tvíkynhneigð, trans reynsla eða kynvitund er hluti af sögunni.
Hér eru nokkrar þeirra mynda sem vert er að hafa augastað á. Smelltu á heiti myndar til að sjá nánari upplýsingar og sýningartíma hjá RIFF.
Club Kid – Partýpabbi
Leikstjóri: Jordan Firstman
Peter er samkynhneigður klúbbakynnir í New York sem hefur árum saman lifað fyrir djammið, þar til tíu ára sonur sem hann vissi ekki að hann ætti birtist skyndilega. Myndin gerist í LGBT+ næturlífi New York en verður jafnframt þroskasaga um fjölskyldu og ábyrgð.
Arctic Circle of Lust – Heimsnautnabaugur
Leikstjóri: Markku Heikkinen
Finnsku hjónin Petri og Anu þurfa að endurskoða reglur sambandsins eftir að Petri hefur horfst í augu við tvíkynhneigð sína. Heimildarmyndin fjallar opinskátt um tvíkynhneigð, leynd, langanir og samskipti karla á finnsku landsbyggðinni.
The Ornithologist – Fuglafræðingurinn
Leikstjóri: João Pedro Rodrigues
Fuglafræðingurinn Fernando villist inn í sífellt furðulegra ferðalag um portúgalska náttúru. Þetta er mjög queer endursköpun á sögunni um heilagan Antoníus þar sem trú, karlmennska, samkynja löngun og umbreyting fléttast saman.
Will-o'-the-Wisp – Villuglóð
Leikstjóri: João Pedro Rodrigues
Alfredo prins rifjar á dánarbeðinu upp æsku sína og drauminn um að verða slökkviliðsmaður. Þar kynntist hann Afonso og milli mannanna kviknaði ást og kynferðisleg löngun. Myndin er litrík og ófeimin LGBT+ söngvamynd sem leikur sér einnig með konungsveldið, kynhlutverk og samfélagslegar venjur.
Two Times João Liberada – João Liberada þá og nú
Leikstjóri: Paula Tomás Marques
João leikur í kvikmynd um Liberada, persónu sem braut gegn kynjaviðmiðum og varð fyrir ofsóknum rannsóknarréttarins. Kynvitund, queer saga og spurningin um hver fær að segja sögur fólks sem hefur verið þurrkað út úr opinberri söguskoðun eru í miðju myndarinnar.
Them, Fado Bicha – Við erum Fado Bicha
Leikstjóri: Justine Lemahieu
Heimildarmynd um Lila og João, tvíeykið Fado Bicha, sem hefur endurmótað hina rótgrónu portúgölsku fado-hefð með LGBT+ sögum, pólitík og aktívisma. Kynhneigð, kynhlutverk, tungumál og sýnileiki LGBT+ fólks eru hér beinlínis viðfangsefni myndarinnar.
The Dashed Lines – Brotin líf
Leikstjóri: Anxos Fazáns
Bea, fimmtug kona í miðjum skilnaði, kynnist Denís, 28 ára trans manni sem býr við atvinnuóöryggi. Úr verður viðkvæm saga um vináttu, einmanaleika og sjálfsmynd þar sem trans reynsla Denís er hluti af persónunni án þess að skilgreina hana alla.
I Only Rest in the Storm – Aðeins í storminum finn ég ró
Leikstjóri: Pedro Pinho
Portúgalski umhverfisverkfræðingurinn Sérgio flytur til Gíneu-Bissá og flækist þar inn í náið samband við Diöru og Gui. Gui tengist LGBT+ samfélagi borgarinnar og kynhneigð, löngun og samband þremenninganna verða mikilvægur hluti þessarar umfangsmiklu sögu um vald og arfleifð nýlendustefnu.
Patty Is Such a Girly Name – Patty er stelpunafn
Leikstjóri: Giorgos Georgopoulos
Daphne er ung júdókona frá afskekktri grískri eyju sem flytur til borgarinnar til að elta drauminn um Ólympíuleikana. RIFF-lýsingin segir lítið um LGBT+ þáttinn, en kynhneigð Daphne og það að átta sig á sjálfri sér eru mikilvægur hluti þroskasögunnar.
Fleiri LGBT+ tengingar í dagskránni
Ekki allar myndir sem tengjast LGBT+ á hátíðinni fjalla fyrst og fremst um LGBT+ reynslu. Tvær myndir til viðbótar eru þó áhugaverðar í þessu samhengi.
Atomic Blonde – Kjarnaljóska
Leikstjóri: David Leitch
Atomic Blonde er fyrst og fremst njósna- og hasarmynd, en aðalpersónan Lorraine Broughton, leikin af Charlize Theron, er tvíkynhneigð og samband hennar við franska njósnarann Delphine er hluti sögunnar. Leitch er einn heiðursgesta RIFF í ár og verður myndin sýnd af því tilefni.