Hinseginleikinn | RÚV

Hinseginleikinn | RÚV

Hinseginleikinn er ný þáttaröð fyrir ungt fólk og fjallar um hinsegin fólk. Hinseginleikinn hóf upphaflega göngu sína sem snapchat rás til að fræða ungt fólk um hinsegin málefni og svara þeim spurningum sem það kann að hafa. Um 250 hinsegin ungmenni hafa tekið að sér umsjón snapchat rásarinnar.

Ingileif Friðriksdóttir, annar stofnandi Hinseginleikans, hefur undanfarið haldið fyrirlestra í framhaldsskólum landsins. Nú, tæpum tveimur árum eftir stofnun rásarinnar, er þáttaröðin Hinseginleikinn komin á vef RÚV og leitast við að svara þeim spurningum sem enn eru ríkjandi í íslensku samfélagi, til dæmis: Er samkynhneigð meðfædd? Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar, telur að minnsta kosti að svo sé.

Í fyrsta þætti af sex sem var frumsýndur 8. mars á vef RÚV, var fjallað um samkynhneigð og staðalmyndir. Í næstu þáttum af Hinseginleikanum verður meðal annars fjallað um trans fólk, intersex fólk, kynsegin fólk, pan- og tvíkynhneigt fólk og eikynhneigt fólk. Þættirnir

Þættirnir eru framleiddir af RÚV núll, nýrri þjónustu RÚV við ungt fólk og verða aðgengilegir á RÚV.is, Facebook síðu RÚV og í VOD leigum símafélaganna.

Hér má sjá fyrsta þáttinn:

 

Sjá frétt á RÚV: Nýir þættir um hinsegin fólk hefja göngu sína

Nýlegar greinar